Auglýsing

Klukkan

heyheyhey

29. nóvember 2006 klukkan 05:37
sorry Sibba hvað það er langt síðan ég bloggaði :( ég er bara ekki búinn að vera gera neitt sem er mjög bloggvænt eða þannig, hérna kemur helgin eins og hún lagði sig!

Föstudagur
: Var að vinna og bara eikkað, fór að hitta Tásu og við fórum heim, fórum smá rúnt og til Adda og Christelar þar sem okkur var boðið í pizzu og svona :D ýkt stuð hjá okkur. Addi sagði mér svo hvað hann hafði fundið í vinnuni, Sorpa, það var gítarmagnari! Ég vildi endilega fara og sjá gripinn, enda búið að vanta slíkan svo mánðuðum skiptir. Þegar við vorum svo búin að keyra niðrí Sorpu þá sá Addi að það var búið að taka blessaðann magnarann. Við Tása fórum heim að sofa stuttu eftir það.

Laugardagur: VINNA URG. Búinn í vinnuni og kem heim, er svo hent aftur útí bíl og í matarboð hjá systir minni. Ég var þvílíkt svangur eftir vinnudaginn þannig að ég sló bara til. Pasta og ostabrauð. NAMMI gat ekki verið betra, dýrka þetta tvennt saman :P Þá hringir Kubbur í mig og biður mig að ná í sig uppá landspítala því það hafði skeð slys (ekkert vera spennt neitt, þetta endaði vel). Ég dreif mig af stað og hitti hann. Þegar hann hringdi heyrðist mér sko að systir hans hefði dottið illa og slasað sig á höfði. Þegar ég kom þá bauð hann mér að koma inn, og ég gerði það, brá ekkert smá þegar ég sá dóttir hans með eithverjar umbúðir á höfðinu og bara að leika sér :S ég komst þar með að þetta var DÓTTir hans en ekki systir :$

Sunnudagur: Vinna enn og aftur. Samt búinn klukkan fimm, hefði getað verið verra. Kláraði vinnuna og fór bara í tölvuna. Kubbur hringdi og var aftur yfir nóttina. Dóttir hans orðin hress og komin í góðan gír :D Allt að blessast þar á bæ. 

Já þarna er helgin í hnotskurn :D vona að ykkur hafi þótt þetta skemmtilegt og fræðandi. Það var helling annað sem skeði og var skemmtilegt, en það er bara sögur fyrir seinni tíma :)

-Bæbser
BósiKallinn
Sibba skrifar ...
Þér er fyrirgefið þar sem þú hefur hent þrefaldri bloggfærslu í körfuna og þar að leiðandi skorað sex stig með einföldu leijöppi, eða hvað það nú heitir.

Hmm. Ég var einmitt að hanga með systur Kubbs um daginn. Heitirún ekki Árdís eða eitthvað?

Þetta var skemmtilegt og fræðandi. Nú þarf ég ekki að lesa heila bók til að læra allt sem ég lærði af þessari einföldu en jafnframt framandi bloggfærslu hjá þér.
29. nóvember 2006 klukkan 05:42
Eva Flottasta ;) skrifar ...
Kubbur as in Kristófer? Sem á litla stelpu....og bjó einu sinni í fellahverfinu góða?

:D Hahaha...ef svo er er þetta stóri "frændi" minn ;D
01. desember 2006 klukkan 03:41

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Eru ljóðin mín gróf/Dónaleg?