Auglýsing

Klukkan

Það sem af er degi.

23. nóvember 2006 klukkan 22:51
Ég vaknaði kl 12 eftir þæginlegan nætursvefn og hringdi í Landsbankann til að laga aðeins stöðuna á reikningnum mínum og eftir að hafa þurft að bíða endalaust lengi (ca45 mín) var ég beðinn að hringja seinna! Ekki sáttur enda að eiða inneign og tíma í svona vitleysu. Þurfti svo að leggja af stað í Domus Medica og láta taka eithvað línurit af mér. Ég kom þarna inn á stofuna hjá kallinum sem sér um þetta, fór úr þeim fötum sem mér var sagt að fara úr (læknar eru perrar) og lagðist á eithvern bekk.
Kallinn kom svo og setti á mig eithver tæki og gaf mér fjárans straum í löppina! og þegar hann var búinn að því þá heyrðist í honum "ÚPS, ég er ekki með nógu mikinn straum" Andskotinn hafi það, ekki nógan straum og hann var búinn að vera að þessu í 5 heilar mínutur!!! En jæja ég gat svosum ekkert sagt við því enda er þetta mikilvæg rannsókn sem nauðsynlegt er að gera svo ég fái mínar blessuðu bætur :)
Þegar straumgjöfinni var svo lokið stakk hann 2x nálum í löppina á mér til að mæla eithvað. Ég er ekki hræddur við nálar en þetta var viðbjóðslega vont! Stakk nálunum sitthvoru megin við beinið í sköflungnum á mér! *GARG* það kom vægt hróp úr mér líkt og ég væri káþólskur altarispiltur :S (Afsakið orðabragðið).

Þegar þetta var svo búið skellti ég mér með Tönju og Mömmu í Smáralindina þar sem ég fór að tala við þjónustufulltrúa hjá Glitni, farið að langa að skipta um banka þar sem mér finnst Landsbankinn ekkert vera annað en eitt stórt *PRUMP*
Fólkið þar hugsar ekkert um hagi þeirra sem sárt eiga um að binda, gera ekkert nema þú eigir nóg af peningum á bankabókinni!
Mér finnst Glitnir sniðugri kostur, fólkið þar brosir að minnsta kosti þegar það segir hæ, annað en sumstaðar *hóst*Landsbankinn*hóst*

En já svona er dagurinn minn búinn að vera, ef svo ólíklega vill til að ég dett í eithvað skemmtilegt í dag þá mun ég drita því hérna og láta ykkur lesa svo ykkur leiðist ekki :D:D

Þangað til:
Bæbser
BósiKallinn
Sibba skrifar ...
Nálar í löppina er FUCKING PAIN!! Lá einhvern tímann á bekk hjá lækni, með einhverja smá sýkingu eftir skó og gaurinn lét mig ekkert vita og bara tróð einhverri helvítis nál inní hælinn á mér. Hef líka fengið eitt stykki nál í tábergið og aðra í stóru tánna.

Tralala.
23. nóvember 2006 klukkan 22:55
Eva Flottasta ;) skrifar ...
Úff....ég hefði sko betur viljað vinna en þetta pain...no, wait!

Ég fæ milljón skrilljón hræðlega strauma á dag þarna í byko (er bara svona rafmögnuð;Þ) og ég fór í ofnæmispróf í dag...tekið blóðprufur og eitthvað dót :'( ekki gott!

Anyways...see you later ?Skater? :O
24. nóvember 2006 klukkan 04:33

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Eru ljóðin mín gróf/Dónaleg?