Á morgun í dag
23. nóvember 2006 klukkan 06:32
WAHÚÚÚÚ! Frí hjá mér á morgun (eða í dag, fer eftir því hvernig litið er á það :P)
ég er semsagt búinn að vera vinna í dag (Miðvikudag) niðrí Byko Breiddini, ekkert alltof atburðarríkur dagur samt, afskaplega afslappandi, lítið að gera og fínerí.
Kom mér samt á óvart hvað fólk var ekki að stressa sig og ekki með þennan leiðinda móral eins og svo oft! Makalaust hvað fólk nennir að predikera yfir manni um hvað skrúfur kosta (OG BTW ÉG ER Á KASSANUM!, þekki þetta kannski aðeins betur en þau sem koma þarna 2var á ári held ég :S)
Þegar vinnuni svo loksins lauk þá fór ég og náði í Tönjuna mína og við fórum heim til mín að hafa það kósý saman, rétt komumstum áður en bíllinn varð gersamlega bensínlaus. Foreldrarnir ekkert alltof sáttir með það, en hey! Ef þau vilja ekki að ég noti bílinn þeirra þá geta þau bara gjörið svo vel og sagt það við mig, í stað þess að leifa mér að nota bílinn og vera svo svaka sár yfir að bensínið sé að klárast :)
En allavega þá fórum við Tása að horfa á "Freaks And Geeks" sem eru alveg hreint brilliant þættir sem því miður voru cancelaðir eftir aðeins eina þáttaröð (18 þætti).
Ég er samt að spæla í að fara í háttinn fljótlega, fara í línurit útaf bakinu á mér á morgun.
Bæbser

BósiKallinn
<img src=http://www.surtsey.is/pict/hapl/linurit.gif>